01. tbl. 106. árg. 2020

Ritstjórnargrein

Læknafélag Íslands – til móts við nýtt ár. Reynir Arngrímsson

Reynir Arngrímsson erfðalæknir‚ formaður Læknafélags Íslands

doi: 10.17992/lbl.2020.01.341

Læknafélag Íslands þarf að hafa skýr markmið um uppbyggingu, hlutverk og stefnu í faglegum málum, félagsmálum, fræðslu- og símenntunarmálum, kjara-, réttinda- og hagsmunamálum lækna. LÍ þarf einnig að móta stefnu í heilbrigðismálum og skipulagi heilbrigðiskerfisins sem og lýðheilsu- og þjóðmálum sem hafa snertiflöt við störf lækna. Um þetta hefur verið fjallað í ályktunum aðalfunda LÍ gegnum árin, en það þarf að halda umfjölluninni lifandi með reglubundinni endurskoðun og hún þarf að vera aðgengileg félagsmönnum. Nýjungum og stefnubreytingum þarf að mæta með ábyrgum hætti og umræðum innan LÍ og við heilbrigðisstofnanir og heilbrigðisyfirvöld þar sem víðtæk sérþekking lækna getur nýst og þarf að koma á framfæri. Stefnumótun LÍ til framtíðar árið 2020 gengur út á þetta.

Undirbúningur þessarar vinnu er hafinn í samræmi við ályktun sem samþykkt var á aðalfundi LÍ í september síðastliðnum og mun setja mark sitt á starf LÍ á næstu mánuðum. Spurningar sem leita þarf svara við eru ekki nýjar af nálinni en þurfa stöðuga umræðu og endurskoðun. Hvert skal vera hlutverk LÍ? Hvernig verjum við fjármunum félagsins til skilgreindra kjarnaverkefna og annarra málaflokka? Það þarf að endurskoða upplýsinga- og útgáfumál LÍ og færa til nútímalegra horfs þannig að sjónarmið lækna og samtaka þeirra eigi greiða leið inn í samfélagsumræðuna en drukkni ekki eins og nú vill verða. Við stöndum á tímamótum þar sem vaxandi krafa er um gegnsæi. LÍ og læknar þurfa til dæmis að vera þátttakendur í öllu sem snertir viðhald og skráningu símenntunar.

Samskipti LÍ við sérgreinafélög þarf að skoða og efla, til dæmis innan Fræðslustofnunar LÍ sem er mögulegur og líklega eðlilegasti vettvangur slíkrar samvinnu. Siðfræðiráð LÍ hefur lagt fram tillögur um endurskoðun á siðfræðisáttmála lækna, Codex ethicus. Í ljósi harðrar og á tíðum óvæginna ummæla á opinberum vettvangi á árinu sem leið er mikilvægt að læknar kynni sér reglur þær sem samfélag lækna hefur lagt til grundvallar í samskiptum sín á milli. Stjórn LÍ vonast til að allir læknar kynni sér tillögur siðfræðiráðsins og myndi sér skoðun á því hver skuli vera grundvallaratriði í siðfræði og starfi læknisins og samskiptum þeirra. Siðareglur sem hópar lækna ákveða að sniðganga þarf að ræða og endurskoða. Tryggja þarf að siðareglur á hverjum tíma hafi víðtæka skírskotun til siðferðisvitundar stéttarinnar í heild sinni.

Árið 2020 verður annasamt ár því auk stefnumótunar um hlutverk og verkefni félagsins bíða óleystir kjarasamningar. Kjarasamningar LÍ og ríkisins hafa verið lausir lungann úr þessu ári án þess að nokkuð hafi þokast í samkomulagsátt. Alvarleg staða í samningamálum sjálfstætt starfandi lækna er einnig áhyggjuefni. Sú stefna heilbrigðisyfirvalda að færa læknisþjónustu í útboðsferli mun reynast flókið og verður sennilega illframkvæmanlegt. Mikilvægi þess að læknar hafi fjölbreyttan starfsvettvang til að velja úr verður aldrei of oft ítrekað. Það er ekki eingöngu með hagsmuni lækna að leiðarljósi sem þetta skiptir máli heldur verður ekki annað séð en að árangur og hagkvæmni í rekstri heilbrigðisþjónustunnar standi fremst í þeim löndum sem bjóða blandaða nálgun líkt og við gerum.

Frumvarp um breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu liggur fyrir Alþingi. Margt af því sem þar kemur fram er kunnuglegt. Enn á ný ætla stjórnvöld að freista þess að þagga niður raddir fagstétta, með tillögum um að leggja niður sjálfstæð læknaráð og fagráð annarra fagstétta og steypa í einn samráðsvettvang sem forstjóri velur. Þannig má tryggja alræðisvald og að gagnrýnisraddir þagni. Það hefur ekki farið framhjá læknum að LÍ hefur margoft bent á að Landspítali hlustar ekki á gagnrýnisraddir um óábyrgt starfsmatskerfi til jafnlaunavottunar. Til að tryggja að óbreyttir starfsmenn geti ekki komið sjónarmiðum sínum á framfæri óáreittir á fundum með vottunaraðilum þá skal bæði yfirmaður viðkomandi og mannauðsráðgjafi standa yfir og fylgjast grannt með frammistöðu og skoðunum starfsmannsins. Þarna má segja að taki steininn úr varðandi þöggunartilburði í heilbrigðiskerfinu.

Umboðsmaður Alþingis hefur bent á að skipurit heilbrigðisstofnana snúist um réttindi sjúklinga. Þetta hefur stjórnvöldum yfirsést ef marka má álit umboðsmannsins frá því í september 2019 þegar hann fjallaði um skipurit Landspítala og dró í efa lögmæti þess. LÍ hefur á ný sent kvörtun til umboðsmannsins, byggða á fyrra áliti hans, enda telur félagið nýja skipuritið vera ólögmætt eins og hið fyrra vegna ábyrgðarsviptingar yfirlækna við Landspítala þar sem höfuðlæknisábyrgð þeirra er að engu gerð. Þessu eiga læknar ekki að una og það setur sjúklinga í óvissa og sérkennilega stöðu eins og umboðsmaður hefur bent á.

Læknafélag Íslands óskar félögum sínum og landsmönnum árs og friðar á komandi ári.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica